is
dedken
External Resources

Logo, or whatever Suðurgata-guesthouse Preview Lítið rómantískt ástarhreiður til leigu í uppgerðu gömlu húsi í aðeins 40 mínútna fjarlægð frá Reykjavík.

Um ræðir tvö svefnherbergi, stofu með sjónvarpi, útvarpi og geislaspilara ásamt eldhúsi með öllu tilheyrandi. Í kjallara er svo glæsilegt rómantískt baðherbergi með baðkari úti á miðju gólfi og ruggustól við hliðina, mikið af kertum og baðolíum er á staðnum. Uppábúin rúm og handklæði fylgja.

Húsið er staðsett á sjávarlóð við sjóvarnargarðinn svo það er upplagt að fá sér göngutúr í fjörunni og anda að sér heilnæmu sjávarlofti. Tilvalin gisting fyrir par og alla þá sem vilja komast í rólegt, rómantískt og afslappað umhverfi. Glæsileg aðstaða og notaleg umgjörð.

Sjávarrétta veitingastaðurinn Rauða húsið er í fimm mínútna göngufæri.

Margrét Kristjánsdóttir
Sími: (+354) 898-1197, (+354) 482-1197
Netfang: sudurgisting@sudurgisting.is
Visit us on FacebookFollow us on Twitter